Svarið við bænum allra Barbie aðdáenda er komið; draumkennd kapsúlulína sjálfrar Sophiu Webster sem hún kynnti fyrir fáeinum dögum og hefur sett á markað í samvinnu við leikfangarisann MATTEL.
Línan inniheldur sex pör af skóm sem allir minna á eina frægustu dúkku allra tíma en hér sýnir Sophia svo um munar að hún stendur sjálfum Jeremy Scott, sem er stýrir hátískuhúsi Moschino, fyllilega á sporði í frumlegri hátískuhönnun sem endurspeglar súrrealískan poppkúltúr nútímans.
Innblásturinn sótti Sophia rakleiðis í skóskáp sjálfrar Barbie en meðal þess sem kapsúlulínan inniheldur eru pinnahælar, sandalar, strigaskór og ballerínuskór. Í viðtali við Footwear News sagðist Sophia að hér hefði langþráður draumur loks orðið að veruleika:
„Mig hefur alltaf dreymt um að hanna skófatnað fyrir Barbie, en ég lít á það afrek að fá Barbie loks til að klæðast ballerínuskóm og flatbotna sandölum sem einstakt, persónulegt afrek sem ég er ósegjanlega stolt af. Línan er á mörkum draums og veruleika og það gerir hana enn fallegri.“
Glaðlyndislegir pinnahælar sjálfrar Barbie í fullri stærð eru nú fáanlegir í verslunum Selfridges í London og Manchester, Pedder í Hong Kong, Shanghai, Jakarta og Bejing, ásamt Level Shoe District í Dubai og að endingu gegnm vefsíðu Selfridges og vefverslun Sophiu Webster.
Hér má sjá Barbie línu Sophie Webster: