KVENNABLAÐIÐ

Einn með fyrsta vinning og hlýtur rúmlega 9,4 milljónir

Heppinn miðahafi var einn með 1. vinning í Lottó útdrætti kvöldsins og hlýtur hann rúmlega 9,4 milljónir króna. Miðinn var keyptur í Lottó appinu. Tveir miðahafar skiptu bónusvinningnum á milli sín og fær hvor þeirra rúmlega 206 þúsund krónur í sinn hlut. Annar miðanna var keyptur í Lottó appinu en hinn miðinn var keyptur í Hagkaup, Skeifunni 15 í Reykjavík.

Fjórir miðahafar voru með 2. vinning í Jóker og fá 100 þúsund krónur hver. Einn miðinn var keyptur í Mini Market, Hafnargötu 80 í Reykjanesbæ, einn í Hagkaup í Smáralind og tveir miðar voru í áskrift.

Heildarfjöldi vinningshafa var 5.369.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!