Enginn var með 1. vinning í Lottí í gærkvöldi og því verður Lottó potturinn tvöfaldur í næstu viku, en tveir miðahafar voru með bónusvinninginn og fá rúmlega 438 þúsund krónur hvor. Miðarnir voru keyptir á Lotto.is og Lotto-appinu.
Fimm voru með fjórar réttar tölur í réttri röð í Jókernum og hlýtur hver þeirra 100 þúsund krónur í vinning. Miðarnir voru keyptir í Lotto-appinu og 4 í áskrift.