Hráefni:
- 6-8 úrbeinuð kjúklingalæri
- 1/2 tsk hvítur pipar
- 1 tsk svartur pipar
- 1/2 tsk hvítlaukssalt
- 1/2 tsk lauk duft
- 2 msk ólívuolía
Sósan:
- 350 ml rjómi
- 2 msk hveiti
- 1/2 dl bráðið smjör
- 1 tsk ólívuolía
- 5 hvítlauksgeirar rifnir niður
- 1 msk þurrkaður graslaukur
- 1/2 msk söxuð fersk steinselja
- 1 1/2 dl rifinn parmesan
- 1 tsk svartur pipar
- 1/2 tsk sjávarsalt
- 1 pakki ferskur aspas, skerið breiðasta endann af og ef aspasinn er mjög þykkur má skera hann í tvennt langsum.
Aðferð:
1. Hitið olíu á stórri pönnu. Kryddið kjúklingalærin með hvítum og svörtum pipar ásamt hvítlaukssalti og laukdufti. Steikið kjúklinginn í um 17 mín eða þar til hann er orðinn fallega gylltur og eldaður í gegn. Færið hann af pönnunni og leggið á fat eða disk.
2. Setjið öl hráefnin fyrir sósuna í skál (fyrir utan hvítlaukinn og ólívuolíuna) og blandið vel saman. Takið sömu pönnu og áðan og hitið á henni 1 tsk ólívuolíu og steikið hvítlaukinn í um 1-2 mín. Hellið þá sósunni á pönnuna og náið upp suðu. Látið þetta malla í um 3 mín, hrærið stöðugt í þessu á meðan.
3. Setjið þá aspasinn út í sósuna ásamt steikta kjúklingum. Látið þetta malla áfram í um 5-7 mín (helst með lok á pönnunni) eða þar til aspasinn er farinn að mýkjast.