Hráefni:
- 2 stórar kjúklingabringur, skornar í þvennt langsum svo úr verði 4 þynnri
- 1 dl parmesan rifinn niður
- salt og pipar
- 2 hvítlauksgeirar rifnir niður
- 1 tsk paprika
- 1 tsk ítalskt krydd
- 4 msk smjör
Blómkálsgrjón:
- 1 blómkálshaus
- 1 dl saxaður laukur
- 2 hvítlauksgeirar rifnir niður
- 2 msk grænmetissoð
- safinn af 1 sítrónu
- rauðar chilliflögur
- 1/2 dl fersk steinselja söxuð niður
- salt og pipar
Aðferð:
1. Takið disk og blandið saman parmesan, hvítlauk, paprikukryddi og ítölsku kryddi. Kryddið kjúklinginn með salti og pipar áður en honum er velt uppúr parmesan-blöndunni. Leggið til hliðar.
2. Hitið 2 msk af smjöri á pönnu og steikið bringurnar þar til þær verða fallega gylltar eða í um 3-4 mín á hvorri hlið, fer eftir þykktinni á bringunum. Færið yfir á disk eða fat.
3. Rífið blómkálið niður með rifjárni. Notið sömu pönnu og bræðið aftur 2 msk af smjöri. Steikið lauk og hvítlauk í um 1 mín, passið að brenna hann ekki. Setjið niðurrifna blómkálið á pönnuna og blandið öllu vel saman. Steikið í um 1 mín og hrærið reglulega í „grjónunum“. Hrærið næst 2 msk grænmetissoð, helmingnum af steinseljunni saman við og hrærið vel. Eldið áfram í um 1 mín og bætið þá sítrónusafanum saman við. Kryddið til með salti, pipar og chilliflögum. Hrærið hinn helminginn af steinseljunni saman við.
4. Leggið nú kjúklinginn yfir grjónin á pönnunni og leyfið þeim að hitna í gegn. Berið fram með svörtum pipar, chilliflögum og auka parmesan. Njótið!