KVENNABLAÐIÐ

Tæpir tíu milljarðar fóru til Þýskalands

Auglýsing

 

Þýskur miðahafi datt heldur betur í lukkupottinn í EuroJackpot  því hann var einn með 1. vinning og hlýtur rétt tæpa 10 milljarða króna. Sex skiptu með sér 2. vinningi og fær hver þeirra rúmar 132,6 milljónir. Tveir miðanna voru keyptir í Þýskalandi, en hinir í Finnlandi, Noregi, Svíþjóð og Danmörku.
Þá skiptu sjö miðahafar með sér 3. vinningi og fá þeir rúmlega 20 milljónir hver. Miðarnir voru keyptir í  Slóvakíu, Tékklandi, Spáni, Danmörku og 3 í Þýskalandi

Þrír voru með 4 réttar Jókertölur í réttri röð og fá þeir 100 þúsund krónur í vinning hver. Tveir miðanna voru keyptir í Lottó appinu og einn á lotto.is

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!