Auglýsing
Tónlistarmaðurinn Justin Bieber opnar sig í nýrri heimildarmynd þar sem hann talar meðal annars um að hafa upplifað sjálfsvígshugsanir þegar hann glímdi við andleg veikindi. Hann segir þetta hafa valdið honum stöðugri vanlíðan.
Í sýnishorni úr heimildarmyndinni má heyra hann segja:
„Það komu stundir þar sem ég hugleiddi sjálfsvíg. Ég hugsaði, mun þessi sársauki einhvern tíman hverfa?.“
Heimildarmyndin ber heitið Justin Bieber: Next Chapter og má sjá sýnishorn úr myndinni hér fyrir neðan.