Hráefni:
4 msk olía til steikingar
1 kíló nautakjöt skorið í 3 cm bita
1/2 dl hveiti
5 hvítlauksgeirar rifnir
2 msk tómatpúrra
1 flaska Guinness stout bjór
1 líter nautasoð
1 msk worchestershire sósa
4 greinar ferskt timjan eða 1 tsk þurrkað
2 meðalstórir laukar skornir í grófa bita
5-6 gulrætur skornar í grófa bita
4 sellerí stilkar skornir í bita
salt og pipar
Aðferð:
1. Hitið ofninn í 150 gráður.
2. Skerið kjötið niður í skál, saltið og piprið. Hellið síðan hveitinu yfir og veltið bitunum vel um í skálinni.
3. Hitið olíu í stórum potti(sem má fara inn í ofn). Steikið kjötið í um 8 mín eða þar til það hefur brúnast vel. Takið síðan kjötið úr pottinum og leggið til hliðar.
4. Lækkið hitann á pottinum og bætið í hann hvítlauk og tómatpúrru. Hrærið í þessu í 1 mínútu og setjið þá saman við þetta bjórinn, nautasoðið, Worchestershire sósuna og timjan. Látið þetta ná upp vægri suðu og setjið þá nautið saman við. Setjið lok á pottinn og inn í ofn. Látið malla í ofnum í um 1 klst en gott að að kíkja reglulega í ofninn og jafnvel hræra aðeins í honum.
5. Á meðan kjötið mallar í ofninum tekurðu pönnu og hitar á henni olíu.Steikir síðan laukinn, gulræturnar og selleríið þar til þetta fer aðeins að brúnast. Kryddar til með salti og pipar.
6. Þegar kjötið hefur mallað í ofninum í 1 klst þá tekur þú pottinn úr ofninum og bætir grænmetinu saman við. Potturinn fer svo aftur í ofninn (með lokið hálft yfir pottinu) og lætur malla aftur í um 45 mín – 1 klst. Ef þér finnst vanta nautasoð þá má bæta því við.
Berið fram með alvöru heimalagaðri kartöflustöppu.