Auglýsing
Leikkonan Sharon Stone, 62 ára, greindi frá því í þættinum “The Drew Barrymore Show” að hún hafi yfirgefið stefnumóta-markaðinn, til frambúðar.
„Ég er komin með nóg af stefnumótum. Mér finnst fólk vera óeinlægt og ekki þess vert að eyða tímanum í það. Ég elska að vera ein og eyða tíma með börnunum og vinum mínum,“ segir hún.
„Ég þarf ekki fleiri börn í líf mitt. Ég vil ekki óheiðarleika, fíflaskap og leiki.“
Stone á þrjá syni og hefur verið gift tvisvar.
Hér fyrir neðan má sjá brot úr þættinum.