Auglýsing
Hráefni:
- 2 msk ólívuolía
- 1 laukur skorinn smátt
- 1 gulrót skorin smátt
- 1 sellery stilkur skorinn smátt
- 2 hvítlauksgeirar rifnir niður
- 500 gr nautahakk
- 2 dl rauðvín (má skipta út fyrir rauðvínsedik eða tómatsafa)
- 1 dós tómatar hakkaðir
- 1 tsk ferskt rósmarín eða 1/4 þurrkað
- 1 tsk fersk salvía eða 1/4 þurrkuð
- Salt og pipar eftir smekk
- 350 gr spaghetti
- fersk steinselja til skrauts
- Parmesan ostur á toppinn
Aðferð:
1. Hitið olíu á meðalstórri pönnu. Steikið lauk, hvítlauk, gulrætur og sellerý í um 5 mín eða þar til þetta fer að mýkjast.
2. Bætið kjötinu á pönnuna og steikið áfram í um 10 mín og hrærið reglulega í. Næst fer rauðvín, tómatar og krydd á pönnuna og allt hrært vel saman. Leyfið þessu að malla á vægum hita í um klukkustund. Kryddið til með salti og pipar.
3. Sjóðið spaghetti eftir leiðbeiningum á pakkingu. Þegar pastað er klárt fer það á pönnuna með kjötsósunni og blandað vel saman. Berið fram með parmesan osti og ferskri steinselju.
Auglýsing