Auglýsing
Hráefni:
- 450 gr kjúklingalundir
- 5 hvítlauksgeirar saxaðir niður
- 2 msk Sriracha sósa
- engiferbútur, rifinn niður
- 4 msk ólívuolía
- 2 msk sojasósa
- 2 msk eplaedik
- safinn úr 1 límónu
- 1 msk sykur
- ferskt kóríander, til skrauts
Aðferð:
1. Blandið hráefnunum saman í skál og blandið vel. Leyfið kjúklingnum að standa í marineringunni í að minnsta kosti 1 klst inni í ísskáp. Takið kjúklinginn út 15 mín áður en þið byrjið að elda.
2. Hitið ofninn í 200 gráður.
3. Raðið kjúklingnum í eldfast mót og hellið parti af marineringunni yfir hann. Bakið þetta í 25-30 mín. Á meðan er afgangurinn af marineringunni hitaður í litlum potti og borin fram með kjúklingnum þegar hann kemur úr ofninum.