Hráefni:
- 1 poki litlar kartöflur, skornar í helminga
- 3 msk ólívuolía
- 1 tsk hvítlauksduft
- 2 hvítlauksrif, rifinn niður
- ½ tsk laukduft
- ½ tsk paprika
- ½ tsk salt
- ¼ tsk pipar
- 1 tsk ítalskt krydd
- 1/2 dl rifinn parmesan
Aðferð:
1. Hitið ofninn í 190 gráður.
2. Setjið kartöflurnar í stóra skál ásamt ólívuolíu, kryddum, hvítlauk og parmesan. Blandið þessu vel saman.
3. Leggið bökunarpappír á ofnplötu og dreifið úr kartöflunum á plötuna. Bakið í 45-50 mín eða þar til kartöflurnar eru orðnar vel stökkar og gylltar.