Undanfarið hafa fjölskyldur kætt börn með því að setja bangsa út í glugga og er þetta skemmtilega uppátæki að erlendri fyrirmynd. Morgunblaðið, Vísir, RÚV, Stundin og Mannlíf greindu líka frá þessu á heimasíðum sínum.
Þetta hefur vakið mikla kátínu hjá yngstu kynslóðinni og hvað er skemmtilegra en að geta farið á tuskudýraveiðar með fjölskyldum sínum og talið bangsa í gluggum á göngutúrum sínum í samkomubanni.
Því ekki? Verslarnir hafa tekið upp á því að vera með lifandi gínur í verslunargluggum og spurning hvort að þetta væri ekki bara skemmtileg tilbreyting. Skapa Bangsakynslóð og án efa myndi það vekja gleði hjá mörgum að fá sendan heim Bangsabúning f/ fjölskylduna beint heim að dyrum😍
Við erum öll í þessu saman – hlýðum Víði og tökum Bangsann á þetta!😍