Þessi litlu hengi fyrir blóm er auðvelt að búa til og þú þarft ekkert að kunna að hnýta flókna hnúta því þú notar tréperlur í stað hnúta. Snærið og perlurnar færðu í næstu föndurbúð og lyklahring færðu hjá næsta skósmið sem býr til lykla.
Þetta þarftu:
6 x 80 cm mjúkur snærisbútur eða þykkt/sterkt bómullargarn
Tréperlur með gati sem passar fyrir snærið
Lyklahringur gull eða silfurlitur
Skæri
Falleg lítil planta
ATH!- Kaktusar eru bæði fallegir og svo er engin hætta ef þú ert með kisur að þær meiði sig á kaktusunum 😉
Svona ferðu að:
01 | Þú ræður hvað hengið er langt en þú getur stillt lengdina af í lokin. Taktu alla sex þræðina og bittu þá saman.
02 | Taktu tvo og tvo þræði saman og sameinaðu þá með hnúti.
03 | Skildu þráða pörin að og sameinaðu þau með þræði við hliðina á með perlu og endurtaktu þrisvar.
04 | Ákveddu lengdina og bittu stífan hnút með öllum þráðum efst utan um lyklahringinn og …þetta er allt og sumt. Klipptu endana frá eða leyfðu þeim að hanga.
Og nú geturðu hengt svona litla sæta potta um allt hús, í glugga, inni á baði, í hurðarop eða hvar sem er.
Þetta er svo sætt…þykkblöðungar og kaktusar eru svo skemmtilegir og svo þarf lítið að hugsa um þá…