Auglýsing
Dúnmjúkar, blautnefja og kvikar dverggeitur. Hoppandi og skoppandi af einskærri gleði á trampólíni. Með fjaðurmagnaðan bossann beint út í loftið. Er eitthvað sætara til í henni gömlu veröld? Nema kannski ef vera mætti … þrjár dúnmjúkar, blautnefja og kvikar nígerískar dverggeitur … sem allar hoppa í takt á sama trampólíninu. Frá sér numdar af fjöri.