Lady Gaga hefur ástæðu til að fagna, enda er ár síðan myndin A Star is Born var frumsýnd og nú hefur lagið Shallow fengið sexfalda platínusölu, sex milljón plötur seldar, tvisvar í Bandaríkjunum og sex sinnum alþjóðlega. Vann Gaga og teymi hennar einnig Óskars- og Golden Globe verðlaun fyrir besta lagið og eins tvö Grammy verðlaun, BAFTA og Critics’ Choice verðlaun.
Lady Gaga var með skærbleikt hár á Instagram og dress í stíl – bleikan og svartan köflóttan kjól, háa hanska í stíl og Pleaser skó.
Þrátt fyrir að yfirleitt sé Lady Gaga ljóshærð hefur hún auðvitað prófað aðra liti. Ally í A Star is Born var með rauðbrúnt hár og þegar Lady G litaði hárið aftur ljóst sagði hún að það væri eins og „skilja karakter Allyar eftir og fara aftur í eigin persónuleika.“