Ryan og Blake eru búin að eignast þriðja barnið, en það er um tveggja mánaða gamalt. Þau hafa ekki gefið út yfirlýsingu þess efnis en Us Weekly staðfestir þetta.
Blake sýndi bumbuna í maí að hún og Ryan væri að eignast barn. Í sama mánuði heimsóttu hún og dæturnar James (4) og Inez (2) tökustað þar sem Ryan var að leika í myndinni Free Guy. Hún var skælbrosandi í gráum stuttermabol og gallabuxum með bumbuna.
Ryan og Blake halda sig utan sviðsljóssins með börnin sín, sem er skiljanlegt. Þau ræða þau sjaldan opinberlega, þrátt fyrir að Ryan hafi játað að þola ekki að fljúga með þau og þau elski flugelda!