Poppið baunir 1 1/2 bolla af baunum á móti 2-3 mtsk af olíu. Svo má svindla og nota örbylgjupopp en ekki segja neinum. Setjið í skál og geymið. Ekki borða það!!! Það besta er eftir…bíðið við!
Karamellan:
3/4 bolli saltað smjör
1 bolli brúnn sykur
1 tsk vanilludropar
1/2 tsk salt
1/4 tsk lyftiduft
Sjóðið saman sykur og smjör á miðlungshita þar til að karamellan dökknar og fær á sig gylltan lit. Passið ykkur að brenna ykkur ekki og að börn séu hvergi nálægt! Þegar byrjar að rjúka eilítið úr karamellunni og hún er orðin vel þykk, takið þá af hellunni og bætið við saltinu, vaniluudropum og lyftiduftinu.
Fáið einhvern til að hjálpa ykkur þegar þið hellið og blandið karamellunni saman við poppið því það þarf að hræra stöðugt í svo karamellan fari á allt poppið. Einn hellir og einn hrærir…Góð samvinna er allt sem þarf 😉
Setjið smjörpappír á bökunarplötu og inn í ofn á 100 gráðum í 40 mín. Hrærið af og til í til að ekki myndist klumpar.
Og nú má setja þetta í fallegar skálar eða krukkur og ÆPA: Gjöriði svo vel!