Leikaraparið Ashton Kutcher og Mila Kunis hafa ekki átt sjö dagana sæla í sprengingum undanfarinna vikna, en Demi Moore gaf út æviminningar sínar með ýmsum smáatriðum um Ashton sem hann hefur eflaust ekki viljað kæmu upp á yfirborðið, s.s. um framhjáhald og þríkant. Hann hefur viðurkennt að vera reiður, en hann ætlaði að setja eitthvað eldfimt á Twitter sem hann hætti svo við.
Ashton (41) og fjölskylda fögnuðu þó fjögurra ára afmæli dóttur sinnar Wyatt í Disneyland í Anaheim í Kaliforníuríki á laugardag. Þau reyndu að skemmta sér með börnunum í skemmtigarðinum.
Þau fóru í ýmis tæki, á sýninguna Great Moments With Mr. Lincoln, gáfu sér tíma til að taka myndir með aðdáendum, og gáfu krökkunum sleikjó.