Hollywoodíkonið Mickey Rorke kom fram í viðtali hjá Piers Morgan og Susanna Reid á GMB á dögunum. Var hann nær óþekkjanlegur vegna lýtaaðgerða. Mickey sem er orðinn 66 ára var með kúrekahatt og skyrtuna hálfhneppta til að sýna húðflúrin sín.
Einn af litlu hundunum hans lék í kjöltu hans meðan hann reyndi að svara spurningum. Margir höfðu á orði að þeir hefðu ekki þekkt stjörnuna sem einu sinni varð fræg í kvikmyndinni Nine And A Half Weeks: „Hver var þetta?? Hann leit ekki út eins og Mickey Rourke!“ Annar sagði: „Nú. Hljómar eins og Mickey Rourke. Lítur samt ekkert út eins og hann, hvað í ósköpunum hefur hann gert.“
Mickey vann Golden Globe fyrir hlutverk sitt í The Wrestler og hefur á efri árum verið sagður hafa sérstakt dálæti á lýtaaðgerðum. Snyrtifræðingurinn Hala Elgmati, hefur sagt að ástæða þess að fólk sé undrandi á útliti hans sé einmitt vegna þess: „Þegar maður horfir til baka var Mickey 19 ára og afar myndarlegur. Þar til hann komst á fertugsaldur var hann enn karlmannlegur og aðlaðandi.“
Hala heldur áfram: „Vinnan sem Mickey hefur látið gera á sér hefur neikvæð áhrif, hún stingur í augun. Það er allt of mikið búið að gera. Fegurðarskyn fyrir mannsaugað er mælt í kvörðum og það eru bilin milli augna, nefs og munns. Það er búið að rugla í því öllu og þess vegna finnst manni hann skrýtinn.“
„Það er erfitt fyrir heilann að meðtaka og þessvegna sjá sumir hann sem „ónáttúrulegan,“ segir Hala og segir Mickey vera með hárkollu sem hann lími á hársvörðinn og það dugi í tvo mánuði senn. Telur hún ekki að hann hafi farið í hárígræðslu. Hún segir hann hafa farið mikið í Bótox, breytt kinnunum með fyllingarefnum og hann hefur látið sprauta í varirnar sem gerir hann „kvenlegan.“