Það er bara ein „efnishyggjustelpa“ og það er Madonna. Hún er orðin 61 árs og er ekkert að láta aldurinn þvælast fyrir sér enda henti hún í eitt partý á föstudagskvöldið þar sem hún djammaði alla nóttina með 150 gestum.
Margir voru dansarar og kollegar hennar sem vinna með henni að tónleikaferðalaginu Madame X. Fyrstu tónleikarnir verða í september í BAM óperuhúsinu í Brooklyn, New York.
Madonna var sjálf klædd í fjögurra stjörnu herforingjabúning og byrjaði fjörið klukkan 22 og var lengi, sagði gestur.
Vinur Madonnu, meistarakokkurinn Francesco Panella bauð uppá geggjaðan matseðil, s.s.cacio e pepe, tuna tartare, pizzu og fleira ítalsk til heiðurs drottningunni.
Börn Madonnu þau Stella, David, Estere og Mercy sungu fyrir hana „Your Song“ og var dóttir hennar Lourdes Leon á staðnum þó hún hafi ekki tekið lagið.