Árið 1995 var breska fyrirsætan Katie Price að stíga sín fyrstu skref í fyrirsætubransanum. Þegar hún var 17 ára sat hún í fyrsta sinn fyrir hjá Page 3 en notaði þá nafnið Jordan, sem margir kannast við.
Núna, 24 árum seinna, er lítið orðið eftir af þeirri Katie Price sem sat þá fyrir.
Hún hefur farið í ótal aðgerðir, s.s. átta brjóstaaðgerðir, nefið hefur verið lagað nokkrum sinnum, Brazilian butt lift, svuntuaðgerðir og allskonar aðgerðir til að laga það sem miður fór í hinum aðgerðunum.
Í dag er hún einungis skugginn af sjálfri sér og hefur hún oftar en einu sinni lent í lífshættu vegna aðgerðanna og mistaka þeim tengdum. Hefur hún samt aldrei slakað á og segir: „Ég þrái bara fullkomnum og á aldrei eftir að hætta að fara í aðgerðir.”