Söngkonan Rita Ora lætur ekki stærðarvandamál stöðva sig í að klæðast bikininum. Í raun má segja að hún sækist eftir því að finna bikinitoppa sem passa henni ekki og eru of litlir.
Hin 28 ára poppstjarna velur alltaf of litla bikinitoppa eins og sjá má á nýjustu myndunum hennar frá Ibiza. Þar segist hún vera í Newport bikinitopp (sem kostar um 60 dollara) og Itsy buxum (um 40 dollarar).
Aðdáendur hafa fyrir löngu tekið eftir þessu furðulega blæti hennar.
„Bikiniin þín passa aldrei á þig,“ sagði einn á meðan annar gaf ráð: „Ég held að þessi sundföt séu aðeins of lítil á þig, kannski ættirðu að fara að versla í fullorðinsdeildinni í stað barnadeildarinnar.“
Þriðji sagði: „Enn að versla bikini í Mothercare“ og átti þá við breska barnafatakeðju.
Hér að neðan má sjá myndir af henni í bikinium í sömu stærðum: