Gæludýr þurfa stöðuga athygli mannfólksins og það skiptir engu þó eigandinn sé stjarna. Angelina Jolie fór með dóttur sinni Vivienne með fjölskylduhundinn í gæludýrabúðina og vöktu þær mikla athygli eins og sést á meðfylgjandi myndum.
Sunnudaginn 4. ágúst fóru mæðgurnar í PetCo í Los Angeles til að finna eitthvað fyrir hundinn sem og kanínuna þeirra sem var ekki með þeim þennan dag.
Angie hefur einnig sést með dóttur sinni Shiloh í gæludýrabúðum.
Eins og lesendur Sykurs vita eru stjörnurnar Angelina Jolie og Brad Pitt skilin. Þau eiga sex börn saman og hafa þau átt í hatrammri skilnaðardeilu.
Einhverjir höfðu á orði að Angelina væri orðin mjög grönn, en kannski var það bara klæðnaðurinn.