Chris Martin, söngvari Coldplay og barnsfaðir Gwyneth Paltrow (42) hefur nú sagt við vini sína að hann sé einhleypur á ný eftir að hafa verið í sambandi með leikkonunni Dakota Johnson (29) úr Fifty Shades of Grey.
Fyrr á árinu keypti Chris 5,3 milljón dala strandhús á Malibu, Kaliforníuríki, fyrir þau saman. Dakota er dóttir leikarahjónanna Don Johnson og Melanie Griffith.
Vinur parsins sagði við The Sun: „Chris og Dakota voru mjög afslöppuð og vitust mjög hamingjusöm saman. Þau höfðu rætt trúlofun og allir eru mjög undrandi á því að þau hafi haldið í sitthvora áttina.”
Dakota og Chris sáust síðast saman á Sushi Park í L.A í nóvember 2018. Þá hafði annar vinur þeirra spáð þeim í hjónaband: „Þetta er alvarlegt. Chris líkar mjög að hún þrífst ekki í sviðsljósinu og það er sko satt.”
Þau höfðu þá rætt möguleikann á að ganga í hjónaband á þessu ári: „Þau vildu bara sjá hvernig þetta gengi vegna tónleikaferðalaga Chris áður en þau færu alla leið.”
Sagt var að Gwyneth hefði ágætar mætur á Dakota, varðandi börn hennar og Chris. Enda buðu þau Brad þeim í brúðkaupsferðina á Maldíveyjum. Dakota var stressuð að Gwyn myndi taka henni illa og að þau myndu ganga í hjónaband: „Dakota er mjög alvara með Chris og vill ganga að eiga hann og vera hluti af lífi barnanna. Hún veit þó að það er allt best með samþykki Gwyn.”