Að óttast um að makinn haldi framhjá er skelfileg tilfinning. Skjóti sú tilfinning rótum hjá þér muntu að öllum líkindum verða heltekin/n af henni og þú kannt að leita að ýmsum merkjum þess til að staðfesta stærsta ótta þinn.
25% Breta játa að hafa haldið framhjá og því miður telja 29% að makinn sé eða hafi haldið framhjá.
Hver eru einkennin?
Samkvæmt rannsóknum eru nokkur smáatriði, breytingar í hegðun makans, sem geta staðfest að hann (eða hún, að sjálfsögðu!) sé að halda framhjá.
Þau eru eftirfarandi:
- Hann fer að vinna frameftir
- Hann heldur símanum hjá sér öllum stundum
- Hann fer að eyða tíma með vinum sem þú þekkir ekki
- Hann breytir lykilorðinu á símanum/samfélagsmiðlum
- Hann breytir um fatastíl
- Hann kaupir sér nýjan rakspíra eða ilmvatn
- Hann fer að krefjast meira kynlífs en áður
- Hann eyðir Facebookreikningnum sínum
- Hann fer að breyta kynlífsvenjum ykkar
- Hann kaupir óvæntar gjafir handa þér
- Hann kvartar um endalausa þreytu
Helmingur þátttakenda í rannsókninni sagðist aldrei geta fyrirgefið eiginmanninum eða -konunni ef hann eða hún héldi framhjá, en um 39% sagðist myndi vilja halda áfram. Einn af hverjum tíu sagðist vera líklegur til að fyrirgefa eina nótt frekar en skipulagt langtíma framhjáhald.
Áhugavert var eitt varðandi niðurstöðurnar – 13% sagðist myndi vera skeytingarlaus varðandi framhjáhald ef sambandið myndi verða betra eftir það.
Heimild: Mirror.co.uk