Innan við sólarhring eftir að Khloe Kardashian hætti með barnsföður sínum, framhjáhaldaranum Tristan Thompson, hafa komið fram vísbendingar að það hafi verið vegna þess að besta vinkona Kylie, systur Khloe, Jordyn Woods hafi haldið við Tristan.
Hægt er að lesa í pósta Jordyn og Khloe og ummæli Khloe við mynd af Jordyn að hún hafi ekki átt von á þessu.
Khloe skrifar við nýjustu mynd Jordyn „Baby girl,“ og svo síðar skrifar hún sjálf í öðrum pósti: „If your friendship has lasted longer than 7 years, you are no longer friends. You are family.“
Er talið að hún hafi meint að Jordyn hafi svikið hana á þann ömurlegasta hátt sem til er – að hún hafi í raun verið fjölskyldumeðlimur. Kylie er sögð miður sín vegna málsins og hvað hún eigi að gera við vinskap þeirra Jordyn. Öll Kardashian fjölskyldan er hætt að tala við hana.
Jordyn sýndi föt fyrir Khloe og fatalínuna hennar og þó þær væru ekki bestu vinkonur var greinilega hlýtt á milli þeirra.