Björk er ekki af baki dottin í tónlistarsköpun sinni. Reyndar er söngkonan, sem er búsett í New York, afar iðin við kolann og tróð þannig upp sem skífuþeytir í einkasamkvæmi á Wall Street í New York um síðustu helgi.
.
.
Björk, sem er sjálf búsett í borginni, flutti yfir klukkutíma langt sett með súrrealíska kristalsgrímu yfir andlitinu og hermir sagan að hún borið keim af forkunnarfagurri geimveru að baki tækjaflóði sem bergmáĺaði framandi tónverkum út í salinn.
.
.
Tilefnið var fimm ára afmælishóf útgáfufyrirtækisins Tri-Angle Records – sem mun hvað þekktast fyrir útgáfu framúrstefnulegra verka frá tónlistarfólki á borð við Haxan Cloak, Fatima al Quadiri og Evian Christ svo einhverjir séu nefndir.
.
.
Þá kom útgáfufyrirtækið að útsetningu á síðustu breiðskífu Bjarkar, Vulnicura – þar sem Björk spannaði allan hljómskalann og gerði tilraunir á nýjum samsetningum hljóma sem og ytri mörkum hljómlistar.
.
.
Ásamt Björk tróðu skífuþeytarnir Lotic og Total Freedom sem fróðir telja fremstu skífaþeyta heims í dag. Ávallt sér á báti og sannarlega meðal meistara; Íslendingurinn og tónlistarkonan Björk deildi settinu sjálfu á Soundcloud síðu sinni – sérstakt, ekki satt?
.
Heimild: FactMag