Ung móðir sem fæddist með fæðingarbletti um allan líkamann hefur nú loks lært að elska líkama sinn á einstakan hátt – með því að verða farsæl fyrirsæta.
Marika Nagy (21) hefur einstakt heilkenni sem kallast Congenital Melanocytic Nevus, sem er afskaplega sjaldgæfur húðsjúkdómur sem einungis 1% af börnum fá. Marika býr í Berlín í Þýskalandi og hefur undirgengist ýmsar aðgerðir frá því hún var ung í þeim tilgangi að fjarlægja húð. Hún er í miklum áhættuhópi að fá húðkrabbamein.
Þrátt fyrir árin hennar í grunnskóla þar sem hún þurfti að þola mikið einelti lýsir hún sjálfri sér sem fyrirsætu, Instagrammara og móður – hún þakkar ungum syni sínum fyrir nýfengið hugrekki og sjálfstæði.