Eldsvoðinn á Selfossi í gær olli andláti tveggja einstaklinga, manns og konu. Konan sem lést í brunanum á Kirkjuvegi 18 á Selfossi í gær hét Kristrún Sæbjörnsdóttir fædd 1. október 1971, búsett í Reykjavík. Hún lætur eftir sig þrjá syni. Kristrún var gestkomandi í húsinu.
Auglýsing
Karlmaður sem einnig lést hét Guðmundur Bárðarson fd. 29 nóvember 1969 búsettur á Selfossi, ókvæntur og barnlaus. Hann var einnig gestkomandi í húsinu.
Aðstandendur færa viðbragðsaðilum sérstakar þakkir fyrir störf þeirra á vettvangi.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.