Brianna Siegel var að þjóna til borðs á bar nokkrum þegar ungt par kom inn í „happy hour.“ Pöntuðu þau tvo hamborgara og tvo drykki. Þegar þau voru búin að borða spurðu þau hana: „Trúir þú á guð?“Brianna svaraði játandi og gaf þeim reikninginn sem hljóðaði upp á 20 dollara.
Auglýsing
Parið skrifaði á nótuna með 1.200$ þjórféi að það hefði verið guð sem hafi leitt þau í að gefa henni peningana. Tilviljun hefði engu ráðið um það. Brianna tjáði sig um málið í meðfylgjandi myndbandi: