Rétthentir – pfft! Ef þú veist hvaða stjörnur eru örvhentar áttu eftir að sjá greinilega misskiptingu kynþokka á þessu sviði!
Auglýsing
1. Jennifer Lawrence
Þú hefur séð þessa hendi í: The Hunger Games, Winter’s Bone, og Silver Linings Playbook
Þessi hönd er örugglega tryggð fyrir hundrað milljón krónur, og er örugglega líka geðveikt klaufaleg. Hún hefur líka snert Óskarsverðlaunastyttu!
2. Hugh Jackman
Þessa hendi hefurðu séð í: X-Men, Les Misérables, og The Wolverine
Ef hann væri ekki með þessa vinstri kló, hvernig heldurðu að hann hefði náð að lemja alla þessa skúrka í klessu? Geðveikt, herra Jackman.
3. Lady Gaga
Þessi hendi hefur haldið á míkrafón í: The Fame, The Fame Monster, Artpop og A Star is Born
Mama Monster lyftir loppunum, eina vinstri í einu. Engin vinstri hendi hefur verið eins vel snyrt og eins flott síðan Lady Gaga birtist á sjónarsviðinu.
4. Angelina Jolie
Þessa hendi hefurðu séð í: Maleficent, Salt, og Changeling
Þessi hendi tilheyrir ekki bara gullfallegri konu, heldur fær þessi hendi að fara heim á kvöldin og snerta sjóðheitan mann. Ógeðslega óréttlátt!
5. Mark Wahlberg
Þessi hendi hefur sést í: Calvin Klein auglýsingum, The Departed, og The Fighter
Þú veist að Marky Mark grípur enn í Calvin Klein djásnið með þeirri vinstri. Örugglegasta heppnasta höndin í Hollywood.
6. Niall Horan
Þessi hendi hefur haldið á míkrafóni í: Up All Night, Four, og Midnight Memories
Maður verður alltaf að benda í eina átt (One Direction) með vinstri hendi. Annað er bara glatað.
7. Ricky Martin
Þessi hendi hefur sveiflað míkrafóni í: A Medio Vivir, A Quien Quiera Escuchar, og Almas de Silencio
Vá. Ricky er alltaf til í að skreyta þessa fallegu hendi með hring. Því maður verður stundum að láta það eftir sér.
8. Joshua Jackson
Þú hefur örugglega séð þessa hendi í: Dawson’s Creek, Fringe, Cruel Intentions og The Affair
Eins gott að Mr. Jackson skemmdi ekki þessa hendi þegar hann vann í Mighty Ducks. Ferillinn hefði bara ekki orðið eins.
9. Jeremy Renner
Þú hefur séð þessa hendi í: The Avengers, The Hurt Locker, og American Hustle
Captain America er flottur og allt það, en Hawkeye hefur súperhæfileika sem gera hann betri en alla hina… vinstri hendina!
10. Zoe Saldana
Þessa hendi hefurðu séð í: Avatar, Guardians of the Galaxy, og Star Trek
Þessi snákur verndar hana fyrir allri illsku heimsins. En það er ekki eins og hún þurfi á því að halda, því hún er harður nagli.
11. Freddie Prinze Jr.
Þú hefur séð þessa hendi í: Scooby-Doo, She’s All That, og I Know What You Did Last Summer
Þokkalegar hendur á svo ljúfum prinze. Auðvitað er Fred örvhentur!
12. Ed Westwick
Þessi hendi hefur sést í: Gossip Girl, Children of Men, og J. Edgar
Besta slúðrið í bænum er örugglega um þessi hendi. Og að vera með það sem virðist vera milljóna króna úr gerir hendina svo mikið dýrmætari að sjá.
13. William prins
Þessa hendi hefurðu séð í: Breska konungsveldinu
Framtíðar konungshendi herrar mínir og frúr (hneigja sig). Þessi örvhenti prins veit að eðalvín skal halda á í vinstri.
14. Kate Hudson
Þú hefur séð þessa hendi í: How to Lose a Guy in 10 Days, Almost Famous, og Glee
Þetta er sú Kate sem Vilhjálmur prins hefði átt að giftast, þá hefðum við fengið konunglegt örvhent par.
15. Scarlett Johansson
Þessi hendi hefur sést í: Lost in Translation, The Avengers, og Lucy
Enginn lemur frá sér eins og Scarlett. Afhverju? Nú, hún er Scarlett, og vinstra höggið er alltaf djöfulli fast.
16. Zachary Quinto
Þú gætir hafa séð þessa hendi í: Star Trek, Margin Call, og Heroes
Þú getur bara snyrt svona fallegar augnbrúnir með vinstri hendinni, og komið með fullkomna Vulcan kveðju. Quinto að eilífu.
17. Naya Rivera
Þú hefur séð þessa hendi í: Glee, Devious Maids, og The Bernie Mac Show
Þessi vinstri hendi hefur örugglega safnað slatta af blýantskámi á sig, en um leið glansað af fegurð.
18. Joey Lawrence
Þessi hendi hefur birst td. í: Melissa and Joey, Blossom, og Half & Half
Það er enginn vafi á því að Joey er með mjúkustu og fallegustu hendurnar í Hollywood. Ætli það sé algengt að Lawrence ættarnafnið tengist beint örvhentum?
19. Ana de la Reguera
Þú hefur örugglega séð þessa í: Nacho Libre, Cowboys and Aliens, og Backyard
Þú sást hendur hennar eflaust ekki í The Book of Life, en án er heilmikið líf í þessari hendi.
20. Barack Obama
Þessa hendi hefurðu séð í: Hvíta húsinu
Jább, fyrrum leiðtogi hins frjálsa heims er sexý, og af hverju ætti hann ekki að vera það?
21. Kermit the Frog
Þú hefur pottþétt séð þessa hendi í: The Muppet Show, Sam and Friends, og Sesame Street
Jafnvel flottasti prúðuleikari heims er örhventur, en, það kemur mér ekkert við. *sýpur á tei*