Jamie Lynn Spears, systir Britney Spears gerði allt hvað hún gat til að bjarga átta ára dóttur sinni þegar hún keyrði litlum bíl í vatn. Er hún á sjúkrahúsi og ekki er vitað hvort hún hafi það af. Gerðist atvikið á búgarði fjölskyldunnar í Louisianaríki í Bandaríkjunum þann 5. febrúar. Maddie Spears var á litlum ATV (All Terraine Vehicle) og var að reyna að keyra fram hjá skurði þegar hún lenti í vatninu. Hurfu barnið og bíllinn samstundis sjónum þegar hann sökk í vatnið.
Need all the wishes and prayers for my niece ? pic.twitter.com/lTlVQmNEh5
— Britney Spears (@britneyspears) February 6, 2017
Eftir nokkrar sekúndur hlupu Jamie og eiginmaður hennar Jamie Watsin til og hentu sér í vatnið til að bjarga henni. Maddie var föst í öryggisbelti. Eftir tvær mínútur kom sjúkrabíll og aðstoðaði við að ná barninu upp úr köldu vatninu. Nú er hún á spítala og er ástand hennar alvarlegt, en stöðugt.
Britney hefur ákallað aðdáendur sína að „biðja fyrir frænku sinni“ („Need all the wishes and prayers for my niece.”)