..og það var drengur! Söngkonan Janet Jackson fagnar nú fæðingu fyrsta barns síns en hún varð fimmtug í maí í fyrra. Eiginmaður hennar Wissan Al Mana og hún eru í skýjunum eftir að barnið fæddist heilbrigt. Þau hafa nú þegar kosið nafn á drenginn en hann mun heita Eissa Al Mana.
Janet eignaðist barnið á venjulegan hátt og er nú í hvóld. Janet og Wissam giftu sig árið 2012 og tilkynnti Janet um þungunina í maí árið 2016 þar sem hún neyddist til að fresta tónleikaferðalaginu sínu, Unbreakable.
Við óskum þeim að sjálfsögðu til hamingju!
Auglýsing