Hvernig væri að klæðast texta Halldórs Laxness í formi sokkabuxna? Nú geta bókaunnendur glaðst því afar djarfar sokkabuxur hafa nú litið dagsins ljós. Fyrirtækið sem hannar buxurnar kallast My Modern Met Selects, og bæði getur þú fengið sokkabuxur með ódauðlegum textum Edgar Allan Poe, Jane Austen eða Emily Dickinson. Buxurnar kosta frá 21-29 dollurum en einnig er hægt að sérpanta. Kannski maður ætti að panta fyrir jólin – fyrir bókaunnandann sem á allt?
Auglýsing
Auglýsing