Plast-elskandi sálufélagar: Pixee Fox og Justin Jedlica hafa hvort um sig eytt formúgu til að líta út eins og Ken og Barbie. Útlitsdýrkunin hefur þó tekið sinn toll því líkamarnir þeirra eru ekki í góðu standi til að stunda kynlíf (Pixee þarf m.a. að vera í korseletti því mitti hennar er of mjótt til að halda henni uppi í langan tíma í einu.)
Pixee hefur verið einhleyp í langan tíma og Justin er að ljúka skilnaði við eiginmann sinn. Þau eru ekki par, en telja sig hafa fundið sálufélaga í hvort öðru.
Hafa þau eytt um 60 milljónum króna í lýtaaðgerðirnar en ætla ekki að hætta fyrr en þau hafa náð „fullkomnun“ að þeirra mati. Pixee segir: „Við höfum bæði gefist upp á ástinni. Við helgum okkur lýtaaðgerðum og munum ekki hætta fyrr en við náum draumalúkkinu.“
Follow us on @meetbarbieandken #reallifebarbieandken #realitytv #realitytvstars @plasticsofhollywood A photo posted by Pixee Fox – The Living Cartoon (@pixeefox) on
Auglýsing