14 ára stúlka Emmie Jade Bennet fékk ósk sína uppfyllta um að verða Youtube stjarna þar sem hún „mæmar“ lag Ed Sheeran „Drunk.“
Emmie greindist með krabbamein í öxl þegar hún axlarbrotnaði. Æxli á stærð við egg fannst í öxl hennar og hún fór í ótal meðferðir en tapaði baráttunni í júlí sl.
Emmie gerði þetta þriggja mínútna Youtube myndband og biður fólk um að heita á og styrkja Bluebell Wood Hospital í Sheffield sem hjálpaði henni að gera síðustu daga hennar á lífi sérstaka.