Það er alltaf gaman að prófa nýjar kryddblöndur á kjúklingalæri. Þessi er skotheld og svo rosalega góð.
þetta þarftu:
- 3 matskeiðar gróft sinnep
- 2 matskeiðar hunang
- 2 teskeiðar smátt skorið timían
- ½ teskeið salt
- 6 beinlaus kjúklingalæri
Aðferð:
- Hitaðu ofninn á 180. Leggðu smjörpappír á bökunarplötu.
- Hrærðu saman hunang, sinnep, timían og salt í skál og veltu kjúklingalærunum upp úr blöndunni. Raðaðu þeim svo snyrtilega á plötuna.
- Brúnaðu lærin í ofninum í 40-50 mínútur þar til þau eru orðin gullin að sjá.