Oft þarf bara örlítinn pipar og dass af salti til að breyta mat í sælkeramáltíð. Þessi einföldu hráefni ættu því alltaf að vera með í farteskinu í nestiskörfunni eða í bakpokanum.
Olía – hægt að setja í litlar plastflöskur og nota á salat, kjöt og bara allt sem ykkur dettur í hug
Salt – smávegis salt gerir allt betra og kallar fram bragðið í matnum
Pipar – pipar getur breytt venjulegri samloku í sælkeramáltíð
Sítróna – sýra er nauðsynleg í ýmsa rétti eins og pasta og salöt
Hvítlaukur – hvítlauksmauk eða saxaður hvítlaukur gerir gæfumuninn hvort sem það er brauð, pasta eða salat