Leikkonan Jada Pinkett Smith tjáði sig í fyrsta sinn opinberlega eftir atvikið fræga á Óskarnum, en eins og fór eflaust ekki fram hjá mörgum var það þegar eiginmaður hennar Will Smith, sló grínistann Chris Rock utan undir í beinni útsendingu. Þá hafði Chris Rock gert grín að því að Jada væri sköllótt, sem er vegna sjálfsónæmissjúkdóms sem hún glímir við.
Jada var fámál en beinskeytt og sagði í færslu á Instagram-síð sinni að nú tæki við tímabil lækninga og heilunar í hennar lífi.
Smith hefur beðist afsökunar á hegðun sinni og sagði í tilkynningu að ofbeldi í öllum sínum myndum er eitrað og eyðileggjandi.
„Hegðun mín á Óskarsverðlaununum í gærkvöldi var óásættanleg og óafsakanleg. Brandarar á minn kostnað eru hluti af starfinu, en brandari um læknisfræðilegt ástand Jödu var of mikið fyrir mig og ég brást tilfinningalega við,“ skrifaði Smith á Facebook og Instagram.