Fegurðardrottningin Ásdís Rán segir að karlmenn séu hræddir við sig. Í opinskáu viðtali opnar hún sig um hvernig draumaprinsinn hennar á að vera:
„Einhvern góðan og skemmtilegan sem hefur gaman af því að dekra við svona drottningu eins og mig,“ segir Ásdís.
„Ég var alltaf með uppskrift að draumaprinsinum í gamla daga en það virkaði aldrei. Ég hef því lært að vera opin fyrir alls konar. Annars er ég ekkert að stressa mig yfir því að vera á lausu og finnst það bara fínt. Ég veit að hann kemur til mín á réttum tíma.“
Ásdís segir karlmenn einfaldlega vera hrædda við sig. „Karlmenn eru hræddir við mig, konum stendur ógn af mér og það er erfitt fyrir mig að slaka á og vera ég sjálf í kringum fólk, aðallega vegna þess hve annað fólk er óöruggt í kringum mig.“
Fegurðardísin ræðir lífið og tilveruna við Fréttablaðið í dag.