Fjárfestirinn Davíð Helgason, bróðir Egils Helgasonar sjónvarpsstjörnu, á í ástarsambandi við 22 ára yngri kærustu. Sú heppna er kínversk/dönsk fyrirsætaIsabella Lu Warburg, sem fædd er 1999 en Davíð er fæddur 1977. Það er því 22 ára aldursmunur á parinu sem eignaðist dreng á dögunum.
Það kom mörgum á óvart þegar fréttir bárust af því að nýr Íslendingur væri kominn á lista Forbes yfir ríkasta fólk í heimi – og það í miðjum faraldri. Listinn er gefinn út árlega en aðeins einstaklingar sem eiga auðæfi metin á að lágmarki eins milljarð Bandaríkjadala komast á lista. Sá Íslendingur er Davíð.
Davíð er einn stofnenda tæknifyrirtækisins Unity sem sérhæfir sig í framleiðslu á hugbúnað sem notaður er til tölvuleikjagerðar. Fyrirtækið stofnaði hann í kjallaraíbúð í Kaupmannahöfn árið 2004 ásamt tveimur félögum sínum. Upphaflega ætluðu þeir sér aðeins að forrita tölvuleiki.
Nálgast Björgólf Thor
Davíð hefur verið nokkuð í fréttum hér á landi vegna fjárfestinga sinna en hann keypti meðal annars glæsihúsið sem Skúli Mogensen átti á Seltjarnarnesi og við kaupin varð húsið dýrasta fasteign landsins. Davíð er fluttur inn í húsið með kærustunni eftir að hafa tekið það í gegn og gert að sínu. Ljósar innréttingar prýða nú húsið í stað dökkra.
Hlutur Davíðs í Unity er metinn á um 207 milljarða króna en auðæfi Björgólfs Thors eru metin á tæplega 300 milljarða. Það er því ljóst að auðæfi Davíðs nálgast auðæfi Björgólfs óðfluga.
Hér fyrir neðan má sjá myndir úr fyrirsætamöppu Isabellu: