Tveir heppnir miðaeigendur unnu 5 milljónir króna hvor í Happdrætti Háskólans þegar dregið var á dögunum. Þá hrepptu átta miðaeigendur eina miljón króna hver og tíu fengu hálfa milljón hver.
Í heildina skiptu vinningshafar í febrúarútdrætti Happdrættisins með sér rúmum 143 milljónum í skattfrjálsa vinninga.
„Happdrætti Háskólans óskar vinningshöfum innilega til hamingju með vinninga sína og þakkar stuðninginn,“ segir í tilkynningu frá happdrættinu.