Heppinn Dani var einn með 1. vinning þessa vikuna og fær hann rúmlega 622 milljónir króna. Enginn fékk 2. vinning, en einn hlaut hinn al-íslenska þriðja vinning og fær hann rúmlega 2 milljónir í sinn hlut. Miðinn var keyptur í Prinsinum, Hraunbæ 121 í Reykjavík.
Enginn var með 1. vinning í Jóker, en sex kræktu sér í 2. vinning og fær hver þeirra 100 þúsund krónur að launum. Miðarnir voru keyptir Fjarðarkaupum í Hafnarfirði, Prinsinum, Þönglabakka 6 í Reykjavík, Olís v/Álfheima í Reykjavík, lotto.is og tveir í Lottó appinu
Heildarfjöldi vinninga á Íslandi var 7.599