Auglýsing
Hráefni:
- 20 risarækjur
- 1 laukur skorinn smátt
- 2-3 hvítlauksgeirar rifnir niður
- 1-2 msk rautt karrý mauk
- 1 msk rifið engifer
- 1/2 msk olía
- 1 dós kókosmjólk
- 2 msk kóríander saxað niður
- 1 msk lime-safi
- 1 msk soja eða fiskisósa
- salt eftir smekk
Aðferð:
1. Hitið olíu á pönnu og steikið laukinn þar til hann fer að mýkjast. Bætið þá hvítlauk og engifer á pönnuna og steikið áfram í um 1 mín. Þá fer karrý maukið saman við ásamt kókosmjólkinni.
2. Hitið að suðu og leyfið þessu að malla á vægum hita í nokkrar mínútur. Bætið soja eða fiskisósu út í ásamt limesafa. Mallið áfram í 3-4 mín. Bætið við smá salti og soja/fiskisósu ef ykkur finnst þurfa.
3. Setjið rækjurnar á pönnuna og eldið þær í sósunni í 2-3 mín á hvorri hlið. Berið fram með hrísgrjónum og ferskum kóríander.