Auglýsing
Þessi sósa er ótrúlega einföld og hentar með hvaða mat sem er hvort sem það er kjöt, fiskur, kjúklingur eða pastaréttur.
Hráefni:
- 1 msk ólívuolía
- 1 pakki sveppir, skornir í sneiðar
- 5 beikonsneiðar, steiktar vel og skornar í bita
- 2 1/2 dl rjómi
- 1/8 tsk salt
- svartur pipar
- 5 stilkar ferskt timjan, takið af stilkunum og saxið það niður
Aðferð:
1. Hitið olíu á pönnu. Steikið sveppina þar til þeir fara að taka á sig fallega gylltan lit. Bætið þá beikonbitunum (sem er búið að forsteikja) á pönnuna ásamt rjóma, salti, pipar og timjan. Náið upp suðu og leyfið þessu að malla í nokkrar mínútur. Smakkið til með salti ef þörf er á.