Hráefni:
- 1 laukur saxaður smátt
- 5 msk smjör
- 2 brauðsneiðar, rifnar smátt niður
- 3 msk mjólk
- 600 gr nautahakk
- 1 stórt egg
- 1 tsk salt og ½ tsk svartur pipar
- ¼ tsk múskat
- ½ tsk hvítlauksduft
- 1 msk Worcestershire sósa
- 1 msk ólívuolía
- 2 msk hveiti
- 4 dl nautasoð
- 1 1/2 dl rjómi
- ½ – 2 tsk sætt sinnep
Aðferð:
1. Hitið 1 msk af smjöri á pönnu og steikið laukinn í 3-5 mín. Færið laukinn þá af pönnunni og leggið til hliðar í skál.
2. Setjið brauðbitana í stóra skál og hellið mjólkinni yfir. Leyfið þessu að standa í 5 mín. Blandið næst steikta lauknum, hakkinu, eggi, salti, pipar og hvítlauksdufti saman við brauðið og hnoðið þetta vel saman með höndunum. Mótið þetta í litlar kjötbollur.
3. Hitið næst 1 msk af smjöri á pönnu og steikið kjötbollurnar þar til þær hafa brúnast á öllum hliðum. Færið þær yfir á disk eða fat. Notið sömu pönnu og hitið 3 msk af smjöri. Hærið hveitið saman við smjörið og hellið næst nautasoðinu saman við í skömmtum og hrærið stanslaust í þessu á meðan. Hellið rjómanum saman við.
4. Kryddið þetta til með hvítlauksdufti, 1/2 tsk af sætu sinnepi og Worcestershire sósunni og náið upp suðu. Leyfið þessu að malla stutta stund eða í 6-9 mín. Smakkið þetta til með meira sinnepi, salti og pipar. Færið næst bollurnar yfir á pönnuna og leyfið þeim að hitna í gegn áður en þetta er borið fram.