Auglýsing
Chiagrautur er ekki það sama og Chiagrautur … og þessi uppskrift sannar það! Þetta er meira eins og eftirréttur þó þér sé auðvitað ekkert bannað að gæða þér á þessu á morgnanna.
Þessi uppskrift er himnesk og grauturinn er rjómakenndur og alveg unaðslega góður!
INNIHELDUR:
1/4 bolli grófar kókosflögur
1/4 bolli chia fræ
3/4 bolli kókosmjólk
1/2 bolli kókosvatn/ananasdjús eða bara vatn
1 tsk vanillu extrakt/dropar
1/4 tsk gróft salt
1/2 bolli fersk hindber
AÐFERÐ:
- Hrærið saman í skál eða beint í framreiðsluskálar eða krukkur, kókosflögum, chia fræum, kókosmjólk, kókosvatni, vanillu og salti og hrærið þar til allt er vel blandað saman.
- Setjið í tvær krukkur eða skálar og inn í kæli í það minnsta í tvo klukkutíma.
- Berið fram með ferskum hindberjum eða ávöxtum að eigin vali. Skreytið með kókosflögum.