- 4 beinlausar kjúklingabringur
- 1 ½ tsk salt
- 1 tsk svartur pipar
- 2 matsk smátt skorið timían
- 4 hvítlauksrif marin í hvítlaukspressu
- 2 sítrónur
- 2 matsk ólífuolía og meira ef þurfa þykir
- rifin basilikku-eða mintulauf að vild
Svona ferðu að:
- Setjið bringurnar á plastfilmu á borði eða bretti og leggið plastfilmu yfir þær. Notið kökukefli til að fletja bringurnar út þar til þær eru um það bil 1 sentimetri að þykkt.
- Leggið bringurnar í skál og setjið salt, pipar, timían, hvítlauk og rifin sítrónubörk og safa úr einni sítrónu saman við. Þá næst setjið þið ólífuolíuna. Blandið öllu vel saman og kælið í 1-2 tíma. Takið kjúklingabringurnar úr kæli þegar þið kveikið á grillinu.
- Hitið grillið á hæsta styrk. Þegar það er orðið vel heitt burstið þá grillið með smávegis af ólífuolíu. Leggið bringurnar á rjúkandi grillið og grillið þar til þær eru vel brúnaðar eða um 3-5 mínútur. Snúið við og eldið í 3-5 mínútur til viðbótar.
- Setjið steiktu bringurnar á disk og kreistið smávegis af sítrónusafa yfir, smávegis ólífuolíu og ferska kryddið.
Einfalt, hollt og rosalega gott!