Hvorki 1. né 2. vinningur gengu út þessa vikuna í Víkingalottó en einn var með íslenska 3. vinninginn og fær hann rúma 1,8 milljón króna í vinning. Miðinn góði var keyptur hjá Jolla, Helluhrauni í Hafnarfirði.
Fimm voru með fjórar réttar tölur í réttri röð í Jókernum og hlýtur hver þeirra 100 þúsund krónur í vinning. Miðarnir voru keyptir í Fjarðarkaupum, Hafnarfirði, Krambúðinni, Húsavík og þrír voru í áskrift.